2017-12-11 18:18:45 CET

2017-12-11 18:18:52 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Lykill fjármögnun hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lykill fjármögnun hf. lýkur skuldabréfaútboði


Lykill  fjármögnun  hf.  hefur  lokið  skuldabréfaútboði  í skuldabréfaflokkunum
LYKILL 16 1 og LYKILL 17 1. Alls bárust tilboð að nafnvirði 1.000 m.kr.

Ákveðið  var  að  taka  tilboðum  upp  á  100 m.kr.  að nafnvirði í óverðtryggða
flokkinn  LYKILL  16 1 og  var  öllum  tilboðum  tekið á hreina verðinu 100,00.
Heildarstærð flokksins eftir útboðið er 3.300.000.000 kr. að nafnvirði.

Ákveðið var að taka tilboðum upp á 900 m.kr. að nafnvirði í verðtryggða flokkinn
LYKILL  17 1 og var öllum tilboðum tekið  á hreina verðinu 100,304 sem samsvarar
3,85% ávöxtunarkröfu.  Heildarstærð flokksins eftir útboðið er 5.710.000.000 kr.
að nafnvirði.

LYKILL  16 1 og LYKILL 17 1 eru  skuldabréfaflokkar sem tryggðir  eru með veði í
útlánum  og fjármögnunarsamningum Lykils  fjármögnunar. Útgáfudagur og gjalddagi
áskrifta   er   föstudagurinn  15. desember  2017. Óskað  verður  eftir  því  að
skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland þann dag.

Markaðsviðskipti Arctica Finance höfðu umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna.

Nánari upplýsingar veita:

Daði Kristjánsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., dadi@arctica.is, s:
840 4145
Arnar Geir Sæmundsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., arnar@arctica.is,
s: 896 6566
Sighvatur Sigfússon, fjármálastjóri Lykils fjármögnunar
hf., sighvatur@lykill.is, s: 540 1700


[]