2024-05-30 11:32:13 CEST

2024-05-30 11:32:13 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hagar hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Hagar hf.: Útboð á víxlum 5. júní 2024


Hagar hf. efna til útboðs á víxlum miðvikudaginn 5. júní 2024. Boðnir verða til sölu víxlar í nýjum 6 mánaða flokki HAGA241127.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útboðinu og kynningu þess fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu flötu vöxtum sem tekið er. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafnverðseiningum og sótt verður um skráningu þeirra í Kauphöll. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Útboðið undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu víxlaflokksins og töku víxlanna til viðskipta í Kauphöll verða birt á vefsíðu félagsins: https://www.hagar.is/fjarfestar/skuldabrefautgafa/

Skila skal inn tilboðum á netfangið utbod@fossar.is fyrir klukkan 17:00 miðvikudaginn 5. júní 2024. Uppgjör viðskipta fer fram miðvikudaginn 12. júní 2024.


Nánari upplýsingar veita:

Ásgrímur Gunnarsson, Fossar fjárfestingarbanki hf., sími: 522-4000, asgrimur.gunnarsson@fossar.is

Arnar Geir Sæmundsson, Fossar fjárfestingarbanki hf., arnar.saemundsson@fossar.is

Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga hf., geg@hagar.is