2014-04-29 11:18:54 CEST

2014-04-29 11:19:55 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsbréf hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Helgi Þór Arason ráðinn framkvæmdastjóri Landsbréfa


Stjórn Landsbréfa hf. hefur ráðið Helga Þór Arason sem framkvæmdastjóra
félagsins. 

Helgi Þór Arason hefur mikla reynslu af íslenskum fjármálamarkaði en undanfarin
ár hefur hann gegnt starfi forstöðumanns Markaðsviðskipta í Landsbankanum hf. 

Helgi nam viðskiptafræði við Háskóla Íslands og stefnir á að ljúka MBA prófi
frá sama skóla nú í vor. Hann hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum sbr. 53.
gr. laga um fjármálafyrirtæki. 

Helgi hefur störf þann 5. júní næstkomandi, en fram að þeim tíma mun Hermann
Már Þórisson, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra Landsbréfa til
bráðabirgða, vera framkvæmdastjóri félagsins. 

Nánari upplýsingar veitir Sigurbjörn Jón Gunnarsson, stjórnarformaður
Landsbréfa hf. í síma 693 2207.