2008-12-17 14:32:27 CET

2008-12-17 14:33:26 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Exista hf. - Fyrirtækjafréttir

- Kröfur Exista gagnvart íslenskum fjármálastofnunum


Kauphöllin OMX Nordic Stock Exchange á Íslandi hefur óskað eftir því að Exista
hf. birti upplýsingar um kröfur félagsins á hendur íslenskum fjármálastofnunum
og vill félagið leitast við að verða við þeirri beiðni. 

Miðað við dagsetningu þessarar tilkynningar áætlar Exista að kröfur félagsins á
hendur íslenskum bönkum nemi a.m.k. 120 til 140 milljörðum króna. Kröfurnar
felast aðallega í innlánum og óuppgerðum samningum þar sem íslenskir bankar eru
mótaðilar Exista. Eins og kunnugt er, þá eru reikningar Exista gerðir upp í
evrum en eignir og skuldir félagsins eru samsettar úr fleiri gjaldmiðlum, m.a.
íslenskum krónum, norskum krónum og sterlingspundum. Stærstur hluti krafna
Exista byggir á vörnum félagsins á eigin fé gegn sveiflum í öðrum myntum
gagnvart uppgjörsmynt félagsins, evru. 

Brýnt er að taka fram að á þessu stigi er mikil óvissa um það hvort kröfur
Exista fáist greiddar í heild eða að hluta. Í kjölfar yfirtöku
Fjármálaeftirlitsins hefur eignum og skuldbindingum íslensku bankanna verið
skipt upp í ný félög og dótturfélög og liggur í mörgum tilfellum ekki fyrir að
hvaða aðilum kröfur Exista munu á endanum beinast. Loks ríkir í ýmsum tilvikum
töluverð óvissa um heildarfjárhæð endanlegra krafna og við hvaða
gengisforsendur verði miðað við endanlegt uppgjör. Á móti kröfum á íslenskar
fjármálastofnanir koma skuldir Exista gagnvart sömu stofnunum sem nema u.þ.b.
125 milljörðum króna. 

Vilji Exista er til þess að ná samkomulagi við íslenska banka um heildaruppgjör
skuldbindinga. Skuldir Exista gagnvart erlendum lánardrottnum nema samtals um
130 milljörðum króna. Exista hefur átt í viðræðum við erlenda lánardrottna um
heildarendurskoðun á lánasamningum félagsins í ljósi breyttra aðstæðna. Þær
viðræður hafa verið uppbyggilegar og eru í jákvæðu ferli, enda þótt engar
niðurstöður liggi fyrir á þessu stigi. Ljóst er að það mun hafa verulega
skaðleg áhrif á rekstrarhæfi félagsins fáist kröfur gagnvart íslenskum bönkum
ekki greiddar, m.a. er ekki hægt að útiloka að lán félagsins verði gjaldfelld í
heild eða að hluta. 

Sem fyrr ítrekar Exista að eignastaða félagsins er óljós og að veruleg óvissa
ríkir um þær tölulegu upplýsingar sem fram koma í tilkynningu þessari.