2011-03-08 16:05:24 CET

2011-03-08 16:06:25 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjaneshöfn - Fyrirtækjafréttir

Kynningarfundur fyrir eigendur fjármálagerninga



Þann 22. desember 2010 samþykktu eigendur fjármálagerninga skilmálabreytingu
sem veitti Reykjaneshöfn tækifæri til að vinna að fjárhagslegri
endurskipulagningu. Stofnunin hefur unnið að stefnumótun og útfærslu á
forsendum fjárhagslegrar endurskipulagningar frá nóvember 2010 og hefur
athyglin einkum beinst að aðgreiningu atvinnusvæðis við Helguvík frá annarri
starfsemi Reykjaneshafnar. Tækifærið í slíkri aðgreiningu er þríþætt: 

  -- Að laða nýtt fjármagn að atvinnuþróun í Helguvík
  -- Að gefa lánadrottnum óbeina tryggingu í landareignum Reykjaneshafnar
  -- Að losa Reykjanesbæ undan ábyrgð á hluta af skuldum Reykjaneshafnar

Ein útfærsla af slíkri aðgreiningu atvinnusvæðisins hefur verið útfærð ítarlega
og hlotið nokkra kynningu, bæði meðal eigenda fjármálagerninga Reykjaneshafnar
sem og til utanaðkomandi aðila. 

Þann 17. febrúar s.l. voru undirritaðir fjárfestingarsamningar vegna byggingu
kísilvers, ásamt samningum um orkukaup og aðstöðu í Helguvík. Samningar um
aðstöðu í Helguvík eru þrír, þ.e. samningur um lóð undir kísilverið,
verksamningur um framkvæmdir vegna hafnaraðstöðu sem þjóni kísilverinu og
samningur um notkun á hafnaraðstöðu. Samkvæmt samningunum greiðir Íslenska
kísilfélagið ehf. samtals 560 milljónir króna fyrir tæplega 11 hektara
eignarlóð. Samningarnir voru undirritaðir með nokkrum fyrirvörum og hafa aðilar
frest til 15. júní til þess að falla frá fyrirvörum sínum. 

Eigendum fjármálagerninga sem útgefnir eru af Reykjaneshöfn er boðið til
kynningar á tillögum um fjárhagslega endurskipulagningu og nánari útlistun á
efni samninga við Íslenska kísilfélagið miðvikudaginn 16. mars 2011, klukkan
10:00 á Hilton Reykjavík Nordica, ráðstefnusal G.