2008-10-07 10:35:30 CEST

2008-10-07 10:35:56 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kaupþing banki hf. - Fyrirtækjafréttir

Engin afskipti Fjármálaeftirlitsins af Kaupþingi



Í kjölfar róttækrar lagasetningar Ríkisstjórnar Íslands í gærkvöldi
sem leyfir Fjármálaeftirlitinu (FME) að grípa inn í rekstur íslenskra
fjármálafyrirtækja, vill Kaupþing koma eftirfarandi á framfæri:

Fjármálaeftirlitið hefur ekki verið í sambandi við Kaupþing vegna
mögulegra inngripa í starfsemi Kaupþings. Jafnframt staðfestir
Kaupþing að Seðlabanki Íslands hafi veitt bankanum lán að fjárhæð 500
milljónir evra og að Kaupþing muni vinna með stjórnvöldum og gera
allt sem í þess valdi er til að tryggja eðlilegt gangverk
fjármálakerfisins á Íslandi.

Nánari upplýsingar veitir Jónas Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri
Samskiptasviðs, í síma 444 6112.