2009-09-30 15:38:15 CEST

2009-09-30 15:39:14 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sparisjóður Mýrasýslu - Fyrirtækjafréttir

- SPM sækir um heimild til að leita nauðasamninga.


Sparisjóði Mýrasýslu (SPM), kt. 610269-5409, með lögheimili að Digranesgötu 2,
310 Borgarnes, var með ákvörðun Fjármálaeftirlitsins hinn 2. júlí 2009 skipuð
bráðabirgðastjórn, með vísan til ákvæða laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002
með síðari breytingum.Eins og fram kom á fundi bráðabirgðastjórnar með
kröfuhöfum þann 22. september sl. ráðgerði bráðabirgðastjórn að óska eftir
heimild héraðsdóms til að leita nauðasamninga fyrir SPM ef nægilegur fjöldi
kröfuhafa veitti meðmæli með nauðasamningsumleitunum. Tilskilinn fjöldi
kröfuhafa bæði að fjárhæð og fjölda hefur nú veitt meðmæli fyrir því að óskað
verði heimildar til nauðasamninga á grundvelli þess frumvarps er kynnt hefur
verið kröfuhöfum. Hefur bráðabirgðastjórn SPM því nú sent beiðni um heimild til
að leita nauðasamninga skv. l. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. til Héraðsdóms
Vesturlands. Verður beiðnin tekin fyrir í Héraðsdómi Vesturlands, Borgarnesi, í
dag, miðvikudaginn 30. september 2009. Verði sparisjóðnum veitt heimild til að
leita nauðasamninga framlengist umboð bráðabirgðastjórnar SPM skv. 100. gr. a
l. 161/2002 um fjármálafyrirtæki þar til einn mánuður er liðinn frá því þeirri
heimild lýkur. 

F.h. bráðabirgðastjórnar SPM
Sigurður R. Arnalds hrl., formaður