|
|||
2009-07-06 18:49:33 CEST 2009-07-06 18:50:33 CEST REGULATED INFORMATION Sparisjóður Mýrasýslu - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum- Fjármálaeftirlitið skipar SPM bráðabirgðastjórnMeð vísan til 100 gr. a. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, eins og þeim var breytt með lögum nr. 44/2009, skipar Fjármálaeftirlitið þriggja manna bráðabirgðastjórn sem fer ein með sömu heimildir að lögum og eftir samþykktum sparisjóðsins og stjórn og fundur stofnfjáreigenda Sparisjóðs Mýrasýslu hefði ella haft á hendi, sbr. þó 4. tl. 2. mgr. 101. gr. laganna. Í bráðabirgðastjórn Sparisjóðs Mýrasýslu eru skipuð: • Sigurður R. Arnalds, hrl., formaður • Jón Haukur Hauksson, hdl. • Margrét Gunnlaugsdóttir, hdl. |
|||
|