2015-08-28 10:40:02 CEST

2015-08-28 10:40:04 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Fagfjárfestasjóðurinn REG 2 - Ársreikningur

Árshlutareikningur fagfjárfestasjóðsins REG 2 Smáralind árið 2015


Fagfjárfestasjóðurinn REG 2 Smáralind sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út
skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2013. 

  -- Enginn hagnaður varð á rekstri sjóðsins á tímabilinu samkvæmt
     rekstrarreikningi.
  -- Hrein eign sjóðsins nam einni milljón króna samkvæmt efnahagsreikningi.
  -- Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf., í samræmi við
     alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að
     árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á fyrri helmingi
     ársins 2015, efnahagi hans 30. júní 2015 og breytingu á hreinni eign
     sjóðsins á fyrri helmingi ársins 2015, í samræmi við lög um ársreikninga og
     reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af
     Fjármálaeftirlitinu

Hægt verður að nálgast árshlutareikning sjóðsins frá og með deginum í dag á
heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is 

Nánari upplýsingar um árshlutareikning fagfjárfestasjóðsins REG 2 Smáralind
veitir Flóki Halldórsson, framkvæmdastjóri Stefnis í síma 444 7464.

20150630_REG2_SIGN.pdf