|
|||
2021-01-22 12:46:05 CET 2021-01-22 12:46:05 CET REGULATED INFORMATION Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarCorrection: Lánasjóður sveitarfélaga - niðurstaða viðbótarútgáfu úr skuldabréfaútboðiLeiðrétting: Magn seldra skuldabréfa í viðbótarútgáfu er leiðrétt hér að neðan og samsvarandi stækkun LSS150434: Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í LSS150434 og LSS151155 þann 20. janúar 2021. Uppgjör viðskipta fer fram 22. janúar 2021. Samkvæmt 1. gr. í skilmálum aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga stendur aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á meðalverði samþykktra tilboða til kl. 12 á næsta virka degi eftir að útboði lýkur. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í réttu hlutfalli við það magn sem þeir hafa keypt í útboðinu. Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 9.837.000.000á bilinu 1,27% - 1,41%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 5.982.000.000 á ávöxtunarkröfunni 1,33%. Að þessu sinni óskuðu aðalmiðlarar eftir að nýta sér kauprétt fyrir viðbót í LSS150434 fyrir ISK 300.000.000 að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 1,33% og hefur Lánasjóðurinn ákveðið að verða við þeim óskum. Heildarmagn seldra bréfa í útboðinu í LSS150434 að meðtaldri viðbótarútgáfunni er ISK 6.282.000.000. Heildarstærð flokksins að nafnvirði fyrir útboðið var ISK 78.600.852.565 en er nú ISK 84.882.852.565. Ekki var gefið út í LSS151155 í útboðinu. Nánari upplýsingar veitir: |
|||
|