2009-07-01 13:10:36 CEST

2009-07-01 13:11:30 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Hf. Eimskipafélag Íslands - Fyrirtækjafréttir

Eimskip leggur fram beiðni um heimild til nauðasamninga


Hf. Eimskipafélag Íslands lagði fram beiðni um heimild til
nauðasamningsumleitana hjá Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Áform þessa efnis
voru kynnt á aðalfundi félagsins í gær, 30. júní 2009 

Félagið óskaði jafnframt í morgun eftir því við Nasdaq OMX Ísland að hlutabréf
og aðrir fjármálagerningar félagsins verði teknar úr viðskiptum í kauphöll
Nasdaq OMX á Íslandi. Hluthafar Eimskips eru í dag 20.000 talsins.