2008-03-07 17:34:00 CET

2008-06-03 14:07:10 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

- Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 19 0226


Fimmtudaginn 13. mars, kl. 14:00, fer fram útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum með
tilboðsfyrirkomulagi hjá Seðlabanka Íslands.                                    

Um er að ræða flokk ríkisbréfa, RIKB 19 0226, sem ber 8,75% vexti sem greiddir  
eru árlega. Lokagjalddagi bréfsins er 26. febrúar 2019.                         

Heildarfjárhæð þessa útboðs verður allt að 8.000 milljónir króna að nafnverði.  
Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en  
þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein    
milljón króna að nafnvirði.                                                     

Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagurinn 17. mars  2008.                      

Í þessu útboði óskar Seðlabankinn eftir kauptilboðum í eftirfarandi flokk       
ríkisverðbréfa:                                                                 

Flokkur
RIKB 19 0226

ISIN 
IS0000017077 

Lokagjalddagi
26.02.2019

Útistandandi að nafnvirði
10.990 m kr.

Lánstími  
11 ár 
                                 

Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir mun Seðlabankinn bjóða      
jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu, til           
aðalmiðlara á ávöxtunarkröfu samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 á            
uppgjörsdegi útboðsins.  Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu   
útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur  
fyrir þessi viðskipti er einum degi eftir viðskiptadag (T+1).                   

Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson, lánamálum ríkisins á alþjóða- og
markaðssviði Seðlabanka Íslands, í síma 569 9633.