2008-06-03 14:46:26 CEST

2008-06-03 14:47:26 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sparisjóður Mýrasýslu - Fyrirtækjafréttir

- Fjármálaeftirlitið synjar Sparisjóði Mýrasýslu um að eignast virkan eignarhlut í Icebank


Fjármálaeftirlitið synjar Sparisjóði Mýrasýslu um að eignast virkan eignarhlut
í Icebank 

Fjármálaeftirlitið (FME) hefur synjað umsókn Sparisjóðs Mýrasýslu (SPM) um að
eignast virkan eignarhlut í Icebank. SPM hafði undirritað samning við Byr,
Spron og Netbankann um kaup á 3% eignarhlut í Icebank en við kaupin fór
eignarhlutur yfir 9,99 prósent. Var samningurinn skilyrtur því að leyfi fengist
hjá FME fyrir því að SPM fengi heimild til að fara með virkan eignarhlut í
Icebank. 

FME hafnaði umsókninni á þeim forsendum að það hefði of mikil áhrif á
eiginfjárhlutfall sjóðsins að eignast umræddan hlut í Icebank ásamt því að með
breyttri stefnu Icebank væri hætta á hagsmunaárekstrum meiri en áður. 

Búið var að færa tap vegna samningsins í áramótauppgjör Sparisjóðs Mýrasýslu en
þar sem kaupin munu ekki eiga sér stað er ljóst að niðurstaða FME mun hafa
jákvæð áhrif á rekstur sjóðsins á þessu ári. 

Nánari upplýsingar veitir Gísli Kjartansson hjá SPM í síma 430 7500.