2013-12-11 18:05:05 CET

2013-12-11 18:05:42 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Íslandsbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Islandsbanki hf. : Flokkar sértryggðra skuldabréfa stækkaðir


Íslandsbanki hf. hefur í dag lokið útboði á útistandandi flokkum sértryggðra
skuldabréfa sem skráðir eru á NASDAQ OMX Iceland. Verðtryggða sjö ára útgáfan,
ISLA CBI 19 var stækkuð um 600.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 2,82 % og
verðtryggða tólf ára útgáfan, ISLA CBI 24 um 380.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni
2,89 %.

Heildarstærð ISLA CBI 19 útgáfunnar er nú orðin 6,63 ma. kr. og ISLA CBI 24 er
orðin 8,47 ma. kr. Alls hefur Íslandsbanki gefið út fimm flokka sértryggðra
skuldabréfa samtals að upphæð 23,32 ma. kr. frá fyrstu útgáfu bankans á slíkum
bréfum í desember 2011.

Bréfin voru seld til breiðs hóps fagfjárfesta. Heildareftirspurnin í útboðinu
var 1,52 ma. kr., en 64% tilboða var tekið. Stefnt er á að bréfin verði tekin
til viðskipta í NASDAQ OMX Iceland þann 18. desember næstkomandi. Viðskiptavakt
fyrir alla flokka sértryggðra skuldabréf Íslandsbanka er á vegum MP banka.

Bréfin eru gefin út í samræmi við lög nr. 11 frá 2008 um sértryggð skuldabréf
þar sem strangar kröfur eru gerðar til útgefenda. Tryggingasafnið að baki
skuldabréfunum skal standast sérstök vikuleg álagspróf með tilliti til vaxta og
gengis gjaldmiðla. Þá hefur Fjármálaeftirlitið sérstakt eftirlit með útgáfunum,
sem einnig tilnefnir sjálfstæðan skoðunarmann til að sinna eftirliti. Skýrslur
um tryggingasafnið að baki sértryggðu skuldabréfunum eru gefnar út
ársfjórðungslega og má finna á vef Íslandsbanka.



Nánari upplýsingar veita:

Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma
440 3187 / 844 3187.

Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í síma
440 3925. 

[HUG#1749254]