|
|||
2008-03-07 17:34:00 CET 2008-06-03 14:07:10 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir- Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 19 0226Fimmtudaginn 13. mars, kl. 14:00, fer fram útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum með tilboðsfyrirkomulagi hjá Seðlabanka Íslands. Um er að ræða flokk ríkisbréfa, RIKB 19 0226, sem ber 8,75% vexti sem greiddir eru árlega. Lokagjalddagi bréfsins er 26. febrúar 2019. Heildarfjárhæð þessa útboðs verður allt að 8.000 milljónir króna að nafnverði. Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagurinn 17. mars 2008. Í þessu útboði óskar Seðlabankinn eftir kauptilboðum í eftirfarandi flokk ríkisverðbréfa: Flokkur RIKB 19 0226 ISIN IS0000017077 Lokagjalddagi 26.02.2019 Útistandandi að nafnvirði 10.990 m kr. Lánstími 11 ár Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir mun Seðlabankinn bjóða jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu, til aðalmiðlara á ávöxtunarkröfu samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 á uppgjörsdegi útboðsins. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er einum degi eftir viðskiptadag (T+1). Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson, lánamálum ríkisins á alþjóða- og markaðssviði Seðlabanka Íslands, í síma 569 9633. |
|||
|