2015-06-12 16:20:39 CEST

2015-06-12 16:21:40 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Fagfjárfestasjóðurinn LFEST1 Borgartún - Fyrirtækjafréttir

LFEST1 Borgartún fagfjárfestasjóður - Uppgreiðsla á skuldabréfaflokki LFEST1 10 1


LFEST1 Borgartún, fagfjárfestasjóður í rekstri Stefnis hf., gaf þann 29. júní
2010, út skuldabréfaflokkinn LFEST1 10 1, sem skráður er í Kauphöll Íslands. 

Lántaki sjóðsins, LF1 ehf., hefur í dag , 12. júní 2015, tilkynnt sjóðnum að
hann muni nýta sér rétt til uppgreiðslu. Í samræmi við skilmála
skuldabréfaflokksins myndast uppgreiðsluskylda sjóðsins á flokknum.
Uppgreiðslugjald nemur 1,5% af uppreiknaðri fjárhæð þeirrar afborgunar, sem
greidd er umfram hina samningsbundnu afborgun á viðkomandi gjalddaga. 

Næsti gjalddagi er 20. júní 2015. Flokkurinn verður greiddur upp næsta
gjalddaga þar á eftir, 20. september 2015. 



Frekari upplýsingar veitir Jón Finnbogason, forstöðumaður skuldabréfa hjá
Stefni hf.: 

S: 444 7469