2008-04-21 18:31:38 CEST

2008-04-21 18:32:27 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kaupþing banki hf. - Fyrirtækjafréttir

Kynningarfundur vegna afkomu Kaupþings banka á fyrsta ársfjórðungi



Kaupþing banki hf. birtir afkomu fyrsta ársfjórðungs 2008
miðvikudaginn 30. apríl.
 
Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn í
Reykjavík 30. apríl í höfuðstöðvum Kaupþings, Borgartúni 19, og hefst
kl. 16.00. Þar mun Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings, kynna
afkomu bankans og svara spurningum. Kynningin verður á ensku.
 
Kynningarefni og upptöku af kynningarfundi verður hægt að nálgast á
heimasíðu bankans, www.kaupthing.com, að loknum fundi.
 
Sýnt verður beint frá fundinum á netinu  á slóðinni
www.kaupthing.com/ir og einnig verður hægt að fylgjast með honum í
síma: Bretland + 44 203 043 24 36, Bandaríkin +1 866 458 40 87 og
Svíþjóð +46 8 505 598 53.
 
Kynningarfundur í Lundúnum
Hreiðar Már Sigurðsson kynnir afkomu bankans í Lundúnum 1. maí, kl.
16.00 að staðartíma. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Kaupthing
Singer & Friedlander að Hanover Street 1, London W1S 1AX.
 
Vinsamlega hafið samband við Fríðu Filipinu Fatalla í
Fjárfestatengslum í síma 444-6192 til að fá nánari upplýsingar eða
sendið póst á netfangið ir@kaupthing.com.