|
|||
2009-09-03 11:41:49 CEST 2009-09-03 11:44:01 CEST REGULATED INFORMATION Össur hf. - FyrirtækjafréttirSkráning Össurar í kauphöll NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn samþykktUmsókn Össurar hf. um skráningu hlutabréfa félagsins í kauphöll NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn hefur verið samþykkt. Hlutabréf Össurar verða opinberlega skráð og tekin til viðskipta 4. september 2009 (auðkenni OSSR, ISIN IS0000000040). Hlutabréf Össurar munu áfram vera skráð í kauphöll NASDAQ OMX á Íslandi. Útgefið hlutafé Össurar er 423.000.000 kr. og skiptist í jafnmarga hluti að nafnvirði ein króna hver. Allir hlutirnir eru í sama hlutaflokki og þeim fylgja sömu réttindi. Nordea Bank Danmark A/S er umsjónaraðili með bréfum Össurar sem verða skráð hjá VP Securities A/S í Danmörku. Össur hefur jafnframt gert samning um viðskiptavakt við Nordea Markets (deild innan Nordea Bank Danmark A/S). Í tengslum við skráninguna hefur Össur gefið út ágrip, samþykkt af danska fjármálaeftirlitinu, þar sem er að finna helstu upplýsingar um félagið og þá áhættu sem tengist starfsemi þess og hlutabréfum. Hjálagt má finna enska útgáfu af ágripinu. Frekari upplýsingar um Össur, þ.m.t. ágripið, kynningarbækling um félagið og starfsemi þess, auk upplýsinga um heimildir til að eiga viðskipti með hlutabréfin sem og möguleika á að flytja þau milli Íslands og Danmerkur er að finna á heimasíðu félagsins: www.ossur.is/investors. Nánari upplýsingar veita: Jón Sigurðsson, forstjóri, sími 515 1300 Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, sími 515 1300 Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill, sími 664 1044 |
|||
|