|
|||
![]() |
|||
2017-01-19 09:57:59 CET 2017-01-19 09:57:59 CET REGULATED INFORMATION HB Grandi hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarNýsköpunarverkefni um nýtingu þorskroðsStjórn HB Granda hefur undirritað viljayfirlýsingu um að taka þátt í að koma upp vinnslu til að vinna kollagen prótein úr þorskroði ásamt Samherja hf., Vísi hf., Þorbirni hf. og Codlandi ehf. Gangi þetta eftir verður hlutur HB Granda 21,8% og mun félagið leggja verkefninu til um 150 milljónir króna. Frumhönnun og mat kostnaði liggur fyrir og er gert ráð fyrir að ráðist verði í byggingu undir starfsemina sem verður á Reykjanesi, í sumar. Nánari upplýsingar um verkefnið má lesa í meðfylgjandi fréttatilkynningu frá Codlandi ehf. |
|||
|