2017-01-23 17:52:50 CET

2017-01-23 17:52:50 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landsbankinn hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Landsbankinn hf. : Lilja Björk Einarsdóttir ráðin bankastjóri Landsbankans


Lilja Björk Einarsdóttir, 43 ára verkfræðingur, hefur verið ráðin bankastjóri
Landsbankans. Lilja mun hefja störf 15. mars nk.

Helga Björk Eiríksdóttir, formaður bankaráðs: ,,Bankaráð Landsbankans býður
Lilju hjartanlega velkomna til starfa. Við teljum að reynsla og þekking hennar
muni nýtast bankanum afar vel. Staða Landsbankans er traust og hann hefur á að
skipa öflugu starfsfólki. Miklar áskoranir eru í rekstrarumhverfi
fjármálafyrirtækja um þessar mundir og samkeppnin er hörð. Lilja er öflugur
leiðtogi sem við treystum til að stýra Landsbankanum af festu og bæta enn frekar
rekstur hans og afkomu. Stefna bankans er skýr. Landsbankinn er samherji
viðskiptavina sinna, hann starfar í sátt við samfélagið og vill vera til
fyrirmyndar."

Lilja útskrifaðist sem véla- og iðnaðarverkfræðingur frá Háskóla Íslands árið
1998 og lauk meistaraprófi í fjármálaverkfræði frá Michigan-háskóla í Ann Arbor
í Bandaríkjunum árið 2003.

Lilja er sjálfstætt starfandi ráðgjafi og stjórnarmaður í fyrirtækjum. Á árunum
2008 til 2016 stýrði Lilja starfsemi, eignaumsýslu og endurheimt eigna gamla
Landsbanka Íslands, LBI ehf., í London. Á árunum 2005 til 2008 var hún
sérfræðingur og síðar framkvæmdastjóri hjá Landsbanka Íslands hf. í London og
bar m.a. ábyrgð á daglegum rekstri og uppbyggingu stoðdeilda. Áður vann Lilja
hjá ráðgjafarfyrirtækinu Marsh & McLennan frá 2003 til 2005 og vann m.a.
verkefni fyrir Ford-bílaframleiðandann, sem sérfræðingur í gerð áætlana og
áhættulíkana fyrir vátryggingarsvið og fjárstýringu.

Lilja Björk Einarsdóttir: ,,Ég hlakka til að hefja störf hjá Landsbankanum og
kynnast starfsfólki, viðskiptavinum og samstarfsaðilum bankans. Ég mun byggja á
því góða starfi sem hefur verið unnið síðustu ár. Ég lít framtíð Landsbankans
björtum augum og ég mun leggja mitt af mörkum til að bankinn geti áfram veitt
viðskiptavinum fyrirmyndarþjónustu á hagkvæman hátt."

Lilja er gift dr. Júlíusi Atlasyni verkfræðingi og eiga þau þrjú börn.

Staða bankastjóra Landsbankans var auglýst 10. desember sl. og sóttu 43 um
starfið. Ráðgjafarfyrirtækið Capacent hafði umsjón með ráðningarferlinu.

Nánari upplýsingar veita:

Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi, pr@landsbankinn.is og í síma 410 6263 /
899 3745

Hanna Kristín Thoroddsen, fjárfestatengsl, ir@landsbankinn.is og í síma 410 7310


[]