2014-01-15 14:39:06 CET

2014-01-15 14:40:07 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kópavogsbær - Fyrirtækjafréttir

Tilkynning frá Kópavogsbæ vegna bæjarstjórnarfundur 14.1.2014


Vakin er athygli á samþykkt bæjarstjórnar Kópavogs um húsnæðismál á fundi þann
14. janúar 2014: 

„Vegna neyðarástands á húsnæðismarkaði samþykkir bæjarstjórn að kaupa nú þegar
30-40 íbúðir víðsvegar í bænum til að mæta vanda þeirra sem þurfa á félagslegum
úrræðum að halda í húsnæðismálum. Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að hefja nú
þegar undirbúning að byggingu tveggja fjölbýlishúsa með leiguíbúðum. Þar verði
hagkvæmar íbúðir til leigu bæði á hinum almenna markaði og hinum félagslega.
Gert er ráð fyrir að þær verði tilbúnar á árinu 2015. “ 

 Þessi ákvörðun gæti hækkað skuldir Kópavogsbæjar um 7 - 9% frá gildandi
áætlunum bæjarins.