2008-04-21 12:16:45 CEST

2008-04-21 12:17:45 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

- Vaxtaákvörðun


Samkvæmt 3. mgr. 21. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998, með síðari
breytingum, og samkvæmt 14. gr. reglugerðar nr. 522/2004 um ÍLS-veðbréf og
íbúðabréf getur stjórn Íbúðalánasjóðs ákvarðað vexti ÍLS-veðbréfa með hliðsjón
af fjármögnunarkostnaði í reglulegum útboðum íbúðabréfa og með vegnum
fjármagnskostnaði vegna uppgreiddra lána, að viðbættu vaxtaálagi. 
Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem
haldið var 18. apríl s.l. ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna
ÍLS-veðbréfa.  Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 4,73%. 

Stjórn Íbúðalánasjóðs hefur sent félags- og tryggingamálaráðherra tillögu um að
vaxtaálag sjóðsins vegna uppgreiðsluáhættu verði hækkað um 0,25%, úr 0,25% í
0,50%.  Ráðherra hefur með bréfi, dags. 10. apríl 2008 fallist á þá tillögu. 

Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,25%, vegna útlánaáhættu 0,20% og vegna
uppgreiðsluáhættu 0,50% samkvæmt því sem áður segir. 

Íbúðalánasjóður hefur því í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að
útlánavextir sjóðsins breytist sem hér segir:  Útlánavextir íbúðalána með
uppgreiðsluákvæði verða 5,20% en 5,70% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis.  Hin
nýja vaxtaákvörðun tekur gildi í dag, 21. apríl 2008.