|
|||
2016-08-08 11:00:00 CEST 2016-08-08 11:00:00 CEST SÄÄNNELTY TIETO Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félagsReglubundin tilkynning um kaup Sjóvá á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ viku 31 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 605.522 eigin hluti að kaupverði 6.842.399 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.) ------------------------------------------------------------------------ ------------------------------------------------------------------------ 04.08.2016 10:32 605.522 11,30 6.842.399 Samtals 605.522 6.842.399 ------------------------------------------------------------------------ Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 9. júní 2016. Sjóvá átti 16.043.216 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 16.648.738 eigin hluti eða sem nemur 1,07% af útgefnum hlutum í félaginu. Sjóvá hefur keypt samtals 6.732.965 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,43% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 77.647.653 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 25.000.000 hluta eða sem nemur 1,6% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó ekki meira en 300.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 30. september 2016 nema ef kaupum samkvæmt henni verður lokið áður. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“ Nánari upplýsingar veitir: Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000 |
|||
|