2011-03-31 16:55:47 CEST

2011-03-31 16:56:52 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Jeratún ehf. - Ársreikningur

Ársreikningur Jeratúns árið 2010



Ársreikningur Jeratúns ehf. er gerður í samræmi við nýja og endurbætta staðla
(IFRS/IAS) og túlkanir (IFRIC) sem tóku gildi á reikningsárinu. 

Ársreikningur Jeratúns ehf. fyrir árið 2010 var staðfestur af stjórn félagsins
í dag, 31. mars 2011. 

Jeratún ehf. er einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar,
Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess.
Hlutverk félagsins er bygging og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla
Snæfellinga í Grundarfirði. Starfsemi félagsins flokkast því undir að vera á
vettvangi sveitarfélaga. 

Tap félagsins á árinu 2010 var 4.922 þús. kr. og í lok þess var eigið fé
neikvætt um sem nam 41.380 þús. kr. samkvæmt ársreikningi. Ástæða fyrir þessu
tapi má rekja til mikils fjármagnskostnaðar og of lágrar húsaleigu. Stjórnin
mun leggja það til við hluthafafund félagsins að hlutafé verði aukið um 21
milljón. 

Stjórn félagsins vekur athygli á áritun óháðs endurskoðanda sem er með
ábendingu. 

Lántaka félagsins er vegna fjármögnunar framkvæmda við Fjölbrautaskóla
Snæfellinga. Sveitarfélögin ásamt ríkinu greiða húsaleigu sem á að standa undir
afborgunum og vöxtum af lánum. Í lok ársins námu eftirstöðvar lána 493,8 millj.
kr. og voru eftirstöðvar í skilum. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á
greiðslu lánanna. 

Félagið er með leigusamning við Menntamálaráðuneytið og sveitarfélögin á
Snæfellsnesi vegna fasteignarinnar til 31. júlí 2024. Núverandi leigugreiðslur
eru kr. 52.480.416 á ársgrundvelli með virðisaukaskatti og eru verðtryggðar með
vísitölu neysluverðs. 



Kristinn Jónasson, er stjórnarformaður Jeratúns ehf. og veitir frekari
upplýsingar um starfsemi þess og stöðu.