|
|||
![]() |
|||
2016-02-17 18:00:28 CET 2016-02-17 18:00:28 CET REGULATED INFORMATION Fjarskipti hf. - FyrirtækjafréttirFjarskipti hf. : Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunarÁ aðalfundi Fjarskipta hf. þann 19. mars 2015 var samþykkt að heimila félaginu kaup á eigin hlutum allt að 10% af hlutafé félagsins, í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Fjarskipti hf. tilkynntu um framkvæmd endurkaupaáætlunar þann 6. júlí 2015. Félagið keypti samkvæmt þeirri áætlun 8.756.164 eigin hluti að kaupverði 400 m.kr. Áætluninni lauk þann 21. desember 2015 þegar skilyrði um hámarkskaup samkvæmt áætluninni voru uppfyllt. Stjórn Fjarskipta hf. hefur á grundvelli fyrrgreindar samþykktar aðalfundar Fjarskipta hf. þann 19. mars 2015 tekið ákvörðun um frekari kaup á eigin bréfum samkvæmt endurkaupaáætlun í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Endurkaupin munu að hámarki nema 2.188.184 hlutum eða 0,65% af útgefnum hlutum í Fjarskiptum hf., en þó þannig að heildarkaupverð verði ekki hærra en 100 m.kr. Áætlunin er í gildi til 17. mars 2016 eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005. Kaup samkvæmt endurkaupaáætluninni verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags munu að hámarki nema 400.102 hlutum eða sem nemur 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins á aðalmarkaði Kauphallar Íslands hf. í janúar 2016. Verð fyrir hvern hlut skal vera að hámarki hæsta verð síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra, í samræmi við 3. mgr. 55. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Viðskipti Fjarskipta hf. með eigin hluti á grundvelli endurkaupaáætlunarinnar verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram. Nánari upplýsingar: Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir, fjarfestatengsl@vodafone.is, sími: 669 9151 [HUG#1986974] |
|||
|