2016-02-17 21:09:35 CET

2016-02-17 21:09:35 CET


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Íslenska Enska
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Mánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs janúar 2016



                   Stöðugar horfur og minni uppgreiðslur lána

  -- Lánshæfismat Íbúðalánasjóðs staðfest. Matsfyrirtækin gera ráð fyrir
     stöðugum horfum.
  -- Ríflega fjórðungi minni uppgreiðslur. Úr 3,7 milljörðum í desember í 2,9 í
     janúar.
  -- Velta íbúðarbréfa jókst og var 10,4 milljarðar í janúar.
  -- Vanskil hafa minnkað mikið síðustu 12 mánuði. 6,9% lána hjá ÍLS eru nú í
     vanskilum.

Uppgreiðslur lána hjá Íbúðalánasjóði voru ríflega fjórðungi minni í janúar en
mánuðinn á undan og námu 2,9 milljörðum samanborið við 3,7 milljarða í
desember. Heildarvelta íbúðabréfa nam 10,4 milljörðum króna í janúar samanborið
við 9,9 milljarða í desember 2015. 

Þann 22. janúar staðfesti matsfyrirtækið Moody‘s lánshæfismat sitt Baa3 fyrir
Íbúðalánasjóðs. Sama dag staðfesti Standard & Poor's lánshæfismat sitt BB/B til
langs tíma. Bæði lánshæfismatsfyrirtækin gera ráð fyrir stöðugum horfum í
lánshæfi Íbúðalánasjóðs. 

Mun færri heimili og fyrirtæki í vanskilum
Í lok janúar nam fjárhæð vanskila útlána til einstaklinga 2,9 milljörðum króna
og var undirliggjandi lánavirði 29,0 milljarðar króna eða um 5,7% útlána
sjóðsins til einstaklinga. Heimili í vanskilum eru 1.408 eða 3,4% þeirra
heimila sem eru með lán hjá Íbúðalánasjóði. 

Hlutfall undirliggjandi lánavirðis lögaðila í vanskilum lækkaði í mánuðinum.
Fjárhæð vanskila útlána til lögaðila nam 3,1 milljarði króna og nam
undirliggjandi lánavirði 16,4 milljörðum króna. Tengjast því vanskil 11,3%
lánafjárhæðar sjóðsins til lögaðila. 

Minni vanskil og aukin gæði lánasafns ÍLS
Heildarfjárhæð vanskila nam 6,1 milljörðum króna, samanborið við 6,2 milljarða
í árslok 2015. Vanskil ná samtals til 6,9% lánasafnsins, en sambærilegt
hlutfall í janúar 2015 var 9,5%. 

Greiðslur Íbúðalánasjóðs vegna íbúðabréfa og annarra skuldbindinga námu 3,9
milljörðum króna í janúar. Heildarútlán Íbúðalánasjóðs í janúar 2016 námu 266
milljónum króna, allt vegna almennra lána. Til samanburðar námu almenn útlán í
desember 2015, 252 milljónum króna. Meðalfjárhæð almennra lána var 10,3
milljónir króna. 

Ítarlegri umfjöllun má lesa í meðfylgjandi mánaðarskýrslu