|
|||
2010-09-29 13:07:44 CEST 2010-09-29 13:08:40 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirÍbúðalánasjóður íhugar breytingar á aðalmiðlarasamningum fyrir íbúðabréf.Í ljósi mikilla sveiflna á verði íbúðabréfa að undanförnu íhugar Íbúðalánasjóður að gera breytingar á núverandi aðalmiðlarasamningum fyrir íbúðabréf, þannig að dregið yrði úr skyldum viðskiptavaka þegar verðbreytingar ná yfir tiltekin þolmörk. Verði slíkar breytingar gerðar á núverandi samningi munu þær verða birtar um leið og þær liggja fyrir. |
|||
|