2011-05-20 16:02:49 CEST

2011-05-20 16:03:50 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Langanesbyggð - Ársreikningur

LEIÐRÉTTING: Ársreikningur Langanesbyggðar fyrir árið 2010, frétt birt 2011-05-19 10:34:21


 Ártal undirskriftar var rangt, rétt dagsetning er 18.05.2011.

Ársreikningur Langanesbyggðar fyrir árið 2010 var tekinn til fyrri umræðu í
sveitarstjórn miðvikudaginn 18. maí 2011 og samþykkti sveitarstjórn að vísa
ársreikningum til síðari umræðu. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um
ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn. Seinni umræða fer fram
fimmudaginn 26. maí nk. 

Ársreikningurinn hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar sem
falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekinn ársreikning fyrir
alla starfsemi þess þ.e. A og B hluta, sbr. 60 gr. sveitarstjórnarlaga, nr.
45/1998 

Til A hluta, þ.e. sveitarsjóðs, telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er
fjármögnuð með skatttekjum, en auk aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og
Þjónustumiðstöð. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að
hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessarra
fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B
hluta starfsemi sveitarfélagsins eru Félagslegar íbúðir, Fráveita, Vatnsveita,
Hafnarsjóður, Naust og Fræ ehf. 

Samkvæmt rekstrarreikningi ársins 2010 námu rekstrartekjur A og B hluta 553,0
millj. kr. samanborið við 581,4 millj. kr. á árinu 2009. Lækkun milli ára nemur
því um 4,9%. 

Rekstrargjöld A og B hluta, þ.e. laun og launatengd gjöld, annar
rekstrarkostnaður og afskriftir námu á árinu 542,2 millj. kr. en voru 576,1
millj. kr. á árinu 2009. Lækkun frá fyrra ári nemur 5,9%. 

Veruleg breyting er á fjármunatekjum og fjármagnsgjöldum milli ára.
Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur A og B hluta árið 2010 námu 25,3 millj.
kr., samanborið við 56,8 millj. kr. á árinu 2008. Lækkun fjármagnsliða skýrist
af hagstæðari verðlagsþróun en á fyrra ári. 

Rekstrarhalli ársins nemur því 14,5 millj. kr. fyrir A og B hluta, samanborið
við 41,8 millj. kr. rekstrarhalla á árinu 2009. 

Frekari upplýsingar veitir:

Gunnólfur Lárusson, sveitarstjóri sveitarstjori@langanesbyggd.is, í síma 468
1220 eða 821-1646