2011-08-30 11:55:56 CEST

2011-08-30 11:56:59 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Glitnir sjóðir - Ársreikningur

Árshlutareikningur Íslandssjóða hf. fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2011.


Stjórn Íslandssjóða hf., sem rekur verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og
fagfjárfestasjóði, hefur staðfest árshlutareikning félagsins fyrir fyrstu sex
mánuði ársins 2011. 

Afkoma Íslandssjóða hf. fyrstu 6 mánuði ársins 2011

  -- Árshlutareikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur
     árshlutareikning Íslandssjóða og B-hluta sem inniheldur árshlutareikning
     verðbréfa- og fjárfestingarsjóða. Þessi framsetning á reikningnum er í
     samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem
     settar eru af Fjármálaeftirlitinu.
  -- Hagnaður rekstrarfélagsins eftir skatta fyrstu 6 mánuði ársins 2011 er 98
     m.kr. samanborið við 124 m.kr. fyrir sama tímabil árið áður.
  -- Rekstrargjöld námu 419 m.kr. samanborið við 328 m.kr. fyrir sama tímabil
     árið áður og hækkuðu um 27,7%.
  -- Hreinar rekstrartekjur námu 541 m.kr. samanborið við 479 m.kr. fyrir sama
     tímabil árið áður, jukust um 12,9%.
  -- Eigið fé 30. júní 2011 nam 1.593 m.kr. en var 1.559 m.kr. í ársbyrjun.
  -- Heildareignir félagsins 30. júní 2011 námu 2.939 m.kr. en voru 2.986 m.kr.
     í árslok 2010.
  -- Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um
     fjármálafyrirtæki, var 154,9% í lok júní, en þetta hlutfall má ekki vera
     lægra en 8,0%.
  -- Fjármunir sjóða í stýringu Íslandssjóða hf. námu 113.228 m.kr. í lok júní
     samanborið við 115.607 m.kr. í árslok 2010.
  -- Í lok júní 2011 voru 16 sjóðir í rekstri hjá félaginu og nam hrein eign
     þeirra 113.228 milljónum króna samanborið við 115.607 m.kr. í lok árs 2010.
     Þar af eru 12 verðbréfasjóðir með hreina eign að upphæð 109.724 milljónir
     króna og 4 fjárfestingarsjóðir með hreina eign að upphæð 3.504 milljónir
     króna. Einn sjóður sem skráður er í Lúxemborg er í stýringu félagsins.
  -- Í lok júní sl. voru fjórir sjóðir í slitaferli hjá Íslandssjóðum. Um er að
     ræða fyrirtækjaskuldabréfasjóðina Sjóð 1 og Sjóð 11 ásamt erlendu
     peningamarkaðssjóðunum í EUR og USD. Frá upphafi slitameðferðar þessara
     fjögurra sjóða auk 9.2 NOK, sem slitið var árið 2010, hafa verið greiddar
     út alls 26.035 milljónir króna til hlutdeildarskírteinishafa.
  -- Árshlutareikningurinn hefur verið kannaður af Deloitte hf. en við könnun
     kom ekkert fram sem bendir til annars en að reikningurinn gefi glögga mynd
     af afkomu félagsins og sjóðanna á fyrstu 6 mánuðum ársins 2011.
  -- Í lok júní 2011 störfuðu 13 starfsmenn hjá Íslandssjóðum. Framkvæmdarstjóri
     félagsins er Agla Elísabet Hendriksdóttir.


Árshlutareikningur félagsins munu liggja frammi hjá félaginu í húsnæði
Íslandsbanka Kirkjusandi, 4. hæð og á www.islandssjodir.is frá og með 6.
september 2011. 


Nánari upplýsingar um árshlutareikning Íslandssjóða hf. veitir Agla Elísabet
Hendriksdóttir, fram¬kvæmda¬stjóri félagsins í síma 440-4917. 

Sjá árshlutareikning og fréttatilkynningu með lykiltölum í viðhengi.