2011-02-07 13:48:57 CET

2011-02-07 13:49:59 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Eyrir Invest ehf. - Ársreikningur

Afkoma Eyris Invest ehf. 2010



Góð arðsemi og traustur efnahagur

  -- Hagnaður af rekstri Eyris Invest árið 2010 nam 52 milljónum evra [2009; EUR
     -24 m]
  -- Heildareignir Eyris eru 426 m evra sem fjármagnaðar eru með eigin fé og
     langtímalánum
  -- Eigið fé í árslok 2010 er 187 milljónir evra og eiginfjárhlutfall er 44%
     [2009; 38%]
  -- Í árslok 2010 gerði Eyrir samkomulag um langtíma bankalán að fjárhæð
     samtals 150 m evra.   Lánin eru fjölmyntalán með lokagjalddaga í maí 2014
  -- Horfur í rekstri Eyris og lykileigna eru góðar.  Á síðastliðnum árum hafa
     félögin stöðugt styrkt markaðsstöðu sína og eru vel í stakk búin til að
     njóta góðs af efnahagsbata á heimsvísu.  Fjármögnun þeirra er í samræmi við
     stefnu og alþjóðleg viðmið þar sem nettó skuldir eru á bilinu 2-3 x EBITDA
     hagnaður

Lykileignir Eyris eru 32% eignarhlutur í Marel, 14% eignarhlutur í Össuri og
17% eignarhlutur í Stork BV sem á og rekur Stork-orkuiðnað og Fokker-flugiðnað. 

Eyrir Invest hefur skilað góðri ávöxtun til hluthafa frá stofnun félagsins á
miðju ári 2000 og reiknast   innra virði hlutabréfa 18,5 evrusent á hlut um
síðustu áramót á móti stofnverði sem var 1,4 evrucent á hlut.  Heimsmarkaðsverð
hlutabréfa hefur lækkað að meðaltali um 4% árlega sem jafngildir 34% lækkun á
sama tímabili (MSCI). 

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri:

„Staða Eyris er sterk og við erum að skila myndarlegum hagnaði á árinu 2010 sem
er mikill viðsnúningur frá árinu 2009. Í fjárfestingarstarfssemi er betra að
meta árangur yfir lengri tímabil en einungis eitt ár í senn.   Við erum stolt
af því hvernig tekist hefur að skapa verðmæti í Eyri á síðustu 3 árum við um
margt erfiðar aðstæður, sem og á þeim 10 árum sem liðin eru frá stofnun
félagsins. 

Stjórnendur og starfsfólk hjá okkar lykilfélögum hafa náð framúrskarandi
árangri. Á síðustu árum hafa félögin stöðugt styrkt markaðsstöðu sína og eru
vel í stakk búin til að njóta efnahagsbata á heimsvísu. Við horfum við því
björtum augum til framtíðar.“ 



Eyrir Invest - starfsemi og afkoma

Kaupa og styðja til vaxtar stefna Eyris hefur skilað góðri arðsemi síðustu ár.
Eyrir hefur verið hluthafi í Marel og Össuri frá árinu 2004 og gerðist hluthafi
í Stork í upphafi árs 2006. Stork var afskráð af Amsterdam markaði í ársbyrjun
ársins 2008 og samhliða því tók Marel rekstur Stork-matvælaiðnaðar yfir. Í dag
rekur Stork BV, Stork-orkuiðnað og Fokker-flugiðnað. Að auki styður Eyrir ýmsa
sprota til vaxtar. 

Síðustu ár hafa lykilfélög Eyris styrkt stöðu sína með stöðugri fjárfestingu í
rannsóknum og þróun og frekari markaðsaðgangi. Öll hafa þau skilað vaxandi
sjóðstreymi og er fjárhagsstyrkur mikill, með nettóskuldir á móti EBITDA
hagnaði um 2-3x í árslok 2010. 

Eignarhlutur Eyris í Marel sem er 32% af heildarhlutafé félagsins um síðustu
áramót, bókast samkvæmt hlutdeildaraðferð. Eignarhlutur í Marel bókast á 62
evrusent um síðustu áramót til samanburðar við viðskiptaverð 65 evrusent (100
ISK). Frá áramótum hefur hlutabréfaverð Marels haldið áfram að styrkjast í takt
við aukin umsvif og bættan rekstur og er nú um 74 evrusent (117,5 ISK). 

Á árinu 2010 seldi Eyrir 23 m hluta í Össuri og er eignarhlutur Eyris í
félaginu því tæp 14% Í árslok.   Þar sem eignarhlutur í Össuri fer niður fyrir
15% af heildarhlutafé, er eignarhluturinn bókaður á markaðsvirði frá og með 31.
október 2010 í stað hlutdeildaraðferðar áður. 

Eignarhlutur Eyris í Stork BV er 17%. Stork stendur á tveimur meginstoðum í
dag: Stork Technical Services og Fokker Technologies, sem felur annars vegar í
sér þjónustu við orkuiðnað og hins vegar þjónustu við flugiðnað.  Eyrir metur
eignarhlut sinn í Stork samkvæmt gangvirðisaðferð (fair value approach) þar sem
stuðst er við kennitölur á markaði og í yfirtökum ásamt sjóðstreymisverðmati.
Varfærnu mati er beitt samkæmt gangvirðisaðferð. Samhliða batnandi afkomu og
lækkandi skuldsetningu hækkaði bókfært verð á Stork um 6% á árinu 2010. 

Horfur

Horft fram á veginn er búist við góðum vexti og virðisaukningu í þeim
atvinnugreinum sem kjölfestueignir Eyris Invest tilheyra; matvæla-,
heilbrigðis-, orku- og flugiðnaði. Á síðastliðnum árum hafa lykilfélög Eyris
stöðugt styrkt markaðsstöðu sína og eru vel í stakk búin til að njóta góðs af
efnahagsbata á heimsvísu.   Afkoma getur verið breytileg frá ári til árs.
Frekari upplýsingar veitir: Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Eyris InvestSími:
525-0200 

www.eyrir.is

Um Eyri

Eyrir er alþjóðlegt fjárfestingarfélag sem leggur ríka áherslu á virka þátttöku
í rekstri og stefnumörkun lykileigna  sinna.  Eyrir Invest var stofnað um mitt
ár 2000. 

Athygli fjárfesta er vakin á eftirfarandi

Sumar staðhæfingar í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og
áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna
við birtingu hennar. Í eðli sínu fela slíkar staðhæfingar því í sér óvissu. Við
vekjum þess vegna athygli fjárfesta á því að margir þættir geta haft þau áhrif
að rekstrarumhverfi og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir
í þessari tilkynningu. Tilkynningin verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað
þetta varðar.