|
|||
2016-01-12 17:32:59 CET 2016-01-12 17:32:59 CET REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf.: Útboð á sértryggðum skuldabréfum fimmtudaginn 14. janúarÍslandsbanki hf. verður með útboð á sértryggðum skuldabréfum fimmtudaginn 14. janúar 2016. Boðnir verða út óverðtryggður flokkur til 4 ára, ISLA CB 19 og 7 ára verðtryggður flokkur, ISLA CBI 22. Þetta er fyrsta sértryggða skuldabréfaútboð bankans á árinu en heildarútgáfa markflokka sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka er áætluð á bilinu 20-30 milljarðar króna á árinu 2016. Nákvæma útgáfuáætlun og útboðsdagatal má finna á vefsíðu Íslandsbanka: https://www.islandsbanki.is/um- islandsbanka/fjarfestatengsl/fjarmognun/sertryggd-skuldabref/ Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187. * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [HUG#1978436] |
|||
|