2009-04-27 18:29:27 CEST

2009-04-27 18:30:30 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Sparisjóður Mýrasýslu - Fyrirtækjafréttir

- SPM fer í greiðslustöðvun


Eins og greint var frá í fréttatilkynningu sem birtist í Nasdaq OMX Iceland
þann 6. apríl síðastliðinn hugðist stjórn SPM sækja um greiðslustöðvun fyrir
sparisjóðinn og ganga til nauðasamninga á grundvelli samkomulags við helstu
lánardrottna sjóðsins. Umsókn um greiðslustöðvun var lögð fram hjá Héraðsdómi
Vesturlands og hefur verið samþykkt. Greiðslustöðvunin gildir í þrjár vikur.
Umsjónarmaður í greiðslustöðvun er Sigurður Arnalds hæstarréttarlögmaður. 

Lánardrottnum verða kynnt drög að nauðasamning fyrir SPM á næstu dögum. Ef
nauðasamningar nást er stefnt að sameiningu SPM og Nýja Kaupþings banka hf.