2009-04-28 06:30:00 CEST

2009-04-28 06:31:12 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Össur hf. - Ársreikningur

Össur hf. - Uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung 2009



Helstu niðurstöður fyrir fyrsta ársfjórðung 2009

  * Sala var 77,2 milljónir Bandaríkjadala, dróst saman um 13%, eða
    4% mælt í staðbundinni mynt
  * EBITDA var 12,9 milljónir Bandaríkjadala, dróst saman um 26%*
    mælt í staðbundinni mynt
  * EBITDA hlutfall var 17%, samanborið við 20%* fyrir sama tímabil í
    fyrra
  * Hagnaður tímabilsins var 7,6 milljónir Bandaríkjadala, samanborið
    við 6,7 milljónir á sama tímabili árið 2008
  * Hagnaður á hlut að teknu tilliti til kauprétta var 1,79 bandarísk
    sent, samanborið við 1,58 sent á sama tímabili í fyrra
  * Hagnaður að viðbættum afskriftum á útistandandi hlut, að teknu
    tilliti til kauprétta, var 2,98 bandarísk sent, óbreytt miðað við
    sama tímabil árið 2008


Jón Sigurðsson, forstjóri:"Salan á fyrsta ársfjórðungi var minni  en við væntum og dróst  saman
um 4%, mælt  í staðbundinni  mynt. Efnahagsþrengingar  á öllum  okkar
helstu mörkuðum hafa  áhrif á  söluna á fyrsta  ársfjórðungi. Sala  á
stoðtækjum er  í takt  við vöxt  markaðarins, en  sala á  spelkum  og
stuðningsvörum er minni en áætlað var í Bandaríkjunum. Við höfum gert
töluverðar breytingar  í  stjórnun á  sölu  og markaðsmálum  sem  við
væntum að  muni skila  árangri.  Á árinu  2009  eru margar  nýjar  og
spennandi vörur væntanlegar og voru tvær nýjar vörur kynntar á fyrsta
ársfjórðungi."


*Ath. að undanskildum einskiptistekjum á fyrsta ársfjórðungi 2008

The press release including tables, the Investor Presentation Q1 2009
and the Financial Statement Q1 2009 can be downloaded from the
following links: