2025-01-22 13:35:54 CET

2025-01-22 13:35:54 CET


Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Fjárhagsdagatal

REITIR: Kynningarfundur vegna birtingar á stjórnendauppgjöri 2024


Reitir munu birta stjórnendauppgjör vegna ársins 2024 eftir lokun markaða mánudaginn 27. janúar næstkomandi.

Af því tilefni er fjárfestum og markaðsaðilum boðið til fundar, þar sem Guðni Aðalsteinsson, forstjóri og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, kynna uppgjörið.

Fundurinn verður haldinn kl. 8:30 þriðjudaginn 28. janúar nk. á skrifstofu Reita, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík. Fundinum verður jafnframt streymt í gegnum netið og slóð þessi efnis birt í tilkynningu um stjórnendauppgjörið. 

Fjárfestar sem fylgjast með streymi geta sent spurningar sem óskað er eftir að verði teknar fyrir á fundinum á netfangið fjarfestatengsl@reitir.is.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í 669 4416 eða einar@reitir.is.