2017-05-24 15:39:27 CEST

2017-05-24 15:39:27 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kvika banki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Kvika banki hf.: Kvika stækkar útgáfu víkjandi skuldabréfs í flokknum KVB 15 01


Fréttatilkynning
24. maí 2017



Kvika stækkar útgáfu víkjandi skuldabréfs í flokknum KVB 15 01

Kvika  hefur stækkað útgáfu á víkjandi  skuldabréfi í flokknum KVB 15 01 um 450
milljónir  króna  að  nafnvirði  og  er  stærð  flokksins  1.000 milljónir eftir
stækkun.

Skuldabréfin  bera 5,50% árlega verðtryggða  vexti til og  með 25. ágúst 2020 en
7,50% árlega  verðtryggða vexti næstu fimm ár þar á eftir eða til gjalddaga 25.
ágúst  2025. Skuldabréfin eru innkallanleg af útgefanda á hverjum vaxtagjalddaga
frá og með 25. ágúst 2020. Lokagjalddagi er 25. ágúst 2025.

Heildarheimild  til  útgáfu  í  KVB  15 01 var  hækkuð  upp í 1.000 milljónir að
nafnvirði  á  fundi  eigenda  skuldabréfanna  þann 19. maí síðastliðinn og hefur
heimild til útgáfu nú verið nýtt að fullu.

Stefnt  er að því að framangreind  stækkun á skuldabréfaflokknum KVB 15 01 verði
tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. fyrir 24. júní 2017.

Nánari  upplýsingar veitir Magnús Ingi  Einarsson, staðgengill forstjóra Kviku í
síma 540 3200.

---

Kvika banki hf.
Kvika  er eini sjálfstæði og sérhæfði fjárfestingabanki landsins. Bankinn sinnir
þörfum   viðskiptavina   á   afmörkuðum   syllum  með  fagþekkingu  og  sérhæfðu
vöruframboði.   Burðarás   Kviku   er   öflug  eignastýring  og  veitir  bankinn
viðskiptavinum sínum alhliða fjármálaþjónustu.

Hjá  Kviku  starfar  samhentur  hópur  83 sérfræðinga  sem  nær árangri í krafti
menntunar,  markaðsþekkingar og víðtækrar reynslu.  Eignarhald Kviku er gagnsætt
og  er hann eini bankinn  sem er að fullu  í eigu einkaaðila s.s. lífeyrissjóða,
fyrirtækja og einstaklinga. Nánar á: www.kvika.is.

[]