2017-09-13 13:20:10 CEST

2017-09-13 13:20:10 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kvika banki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Kvika banki hf.: Útboð á víxlum 18. september 2017


Kvika banki hf. heldur útboð á víxlum bankans mánudaginn 18. september 2017.

Í boði eru víxlar í 6 mánaða flokknum KVB 18 0322 að nafnvirði 2.000 m. kr.
Útboðið er lokað og fer fram með hollensku fyrirkomulagi þar sem verð útboðsins
ræðst af hæstu samþykktum flötum vöxtum. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m. kr.
nafnverðseiningum og verða skráðir í kauphöll Nasdaq Iceland. Tekið er við
tilboðum til kl. 16:00 mánudaginn 18. september. Uppgjörsdagur er 21. september
2017.

Hægt er að hafa samband við markaðsviðskipti Kviku í síma 540-3220 eða með
tölvupósti á vixlar@kvika.is til að fá nánari upplýsingar.


[]