2017-11-17 17:00:00 CET

2017-11-17 17:00:38 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kvika banki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Kvika banki hf.: Kvika og Virðing sameinuð


 Fréttatilkynning

17. nóvember 2017


Kvika og Virðing sameinuð

Kvika banki hf. og Virðing hf. sameinuðust í dagslok í dag og mun sameinað félag
opna  mánudaginn  20. nóvember  undir  nafni  og kennitölu Kviku. Með samrunanum
tekur Kvika yfir öll réttindi og skyldur Virðingar.

Starfsemi  sameinaðs  félags  hér  á  landi  fer  nú  öll fram í húsnæði Kviku í
Borgartúni 25.

Sameining  félaganna hefur  ekki breytingar  í för  með sér fyrir viðskiptavini.
Netföng  og borðsímanúmer starfsmanna Virðingar  munu þó breytast en upplýsingar
um   öll  netföng  og  símanúmer  verður  hægt  að  finna  á  heimasíðu  bankans
www.kvika.is.

Kvika  er eitt umsvifamesta félag  í eignastýringu hér á  landi og eftir samruna
eru um 285 milljarðar í stýringu hjá félaginu.


Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku:
"Það er ánægjulegt að hinu formlega samrunaferli sé lokið. Hjá sameinuðu félagi
kemur saman öflugur hópur sérfræðinga og framundan eru fjölmörg tækifæri til
sóknar."


Um Kviku banka hf.

Kvika  er eini sjálfstæði og sérhæfði fjárfestingabanki landsins. Bankinn sinnir
þörfum   viðskiptavina   á   afmörkuðum   syllum  með  fagþekkingu  og  sérhæfðu
vöruframboði.  Burðarás Kviku er öflug eignastýring og veitir bankinn sparifjár-
og innlánseigendum alhliða fjármálaþjónustu.

Hjá  Kviku  starfar  samhentur  hópur  99 sérfræðinga  sem  nær árangri í krafti
menntunar,  markaðsþekkingar og víðtækrar reynslu.  Eignarhald Kviku er gagnsætt
og  er hann eini bankinn  sem er að fullu  í eigu einkaaðila s.s. lífeyrissjóða,
fyrirtækja og einstaklinga. Nánar á: www.kvika.is.



[]