2014-11-25 19:02:04 CET

2014-11-25 19:03:06 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Ársreikningur

Árshlutareikningur Regins hf. fyrstu níu mánuði ársins 2014



Árshlutareikningur Regins hf. 1. janúar til 30. september 2014 var samþykktur
af stjórn þann 25. nóvember. 

  -- Rekstrartekjur námu 3.458 milljón króna.

  -- Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir var 2.183 milljónir
     króna.

  -- Hagnaður eftir  tekjuskatt nam 1.182 milljónum króna. 
  -- Fjárfestingareignir voru metnar á 52.140 milljónir króna 

  -- Vaxtaberandi skuldir voru 32.251  milljónir króna í lok tímabilsins
     samanborið við 24.837 milljónir kr. við árslok 2013.
  -- Handbært fé frá rekstri nam 1.049 milljónum króna.

  -- Eiginfjárhlutfall er 32%.
  -- Hagnaður á hlut var 0,86 samanborðið við 0,84 árið áður.



Félagið er skráð í Kauphöll Íslands (NASDAQ OMX Iceland hf.) Fjöldi hluthafa
við lok september er 647. 

Rekstur og afkoma

Afkoma Regins á tímabilinu var góð og í ágætu samræmi við áætlun félagsins.
Rekstrartekjur námu 3.458 milljón króna og þar af námu leigutekjur 3.065
milljónum króna. Hækkun leigutekna frá sama tíma fyrra árs er um 18%.
Rekstrarhagnaður fyrir söluhagnað, matsbreytingu og afskriftir var 2.183
milljónum króna og hefur aukist um 19% frá sama tíma fyrra árs. 

Eignasafn og efnahagur

Eignasafn Regins samanstendur af fullgerðu atvinnuhúsnæði með háu
útleiguhlutfalli og traustum leigutökum. Í lok september 2014 átti Reginn 53
fasteignir. Heildarfermetrafjöldi fasteignasafnsins var um 223 þúsund
fermetrar. Útleiguhlutfall fasteignasafnsins var 97% miðað við þær tekjur sem
100% útleiga gæfi. Stærstu eignir Regins eru verslunarmiðstöðin Smáralind í
Kópavogi og Egilshöll í Grafarvogi. 

Fasteignasafn Regins er metið á gangvirði í samræmi við alþjóðlega
reikningsskilastaðla (IFRS). Safnið er metið í lok hvers uppgjörtímabils í
tengslum við gerð árshluta og ársreiknings og við matið er stuðst við núvirt
framtíðar sjóðsflæði einstakra eigna. Matsbreyting á tímabilinu er 630
milljónir króna. 



Kynning

Samhliða birtingu á þessu uppgjöri boðar Reginn til opins kynningarfundar
miðvikudaginn 26. nóvember kl. 08:30 í  Listasafni Íslands, Fríkirkjuvegi 7 á
2. hæð. Helgi S. Gunnarsson, forstjóri félagsins mun kynna afkomu þriðja
ársfjórðungs 2014. Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið:
fjarfestatengsl@reginn.is. 

Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð:

http://streymi.nyherji.is/Mediasite/Play/7395499fa351456298b9f99b0f1515051d



Um félagið

Reginn hf. er íslenskt fasteignafélag sem fjárfestir í, leigir út og annast
rekstur á atvinnuhúsnæði. Félagið er hlutafélag í dreifðu eignarhaldi og skráð
í Kauphöll Íslands (NASDAQ OMX Iceland hf.). Félagið tók til starfa vorið 2009. 

Hægt er að nálgast árshlutareikning þriðja ársfjórðungs og kynningagögn á 
www.reginn.is/fjarfestar/ 

Nánari upplýsingar veitir:
Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

Sími: 512 8900 / 899 6262