2015-01-12 09:46:57 CET

2015-01-12 09:47:58 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Fyrirtækjafréttir

Reykjavíkurborg - RVK 53 1


Reykjavíkurborg hefur ákveðið í samræmi við útgáfuáætlun 2015 að efna til
útboðs í skuldabréfaflokki RVK 53 1 miðvikudaginn 14. janúar. Reykjavíkurborg
stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 500 milljónir króna að markaðsvirði.
Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hækka eða lækka útboðsfjárhæð
útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. 

Útboðið verður með því fyrirkomulagi að samþykkt tilboð bjóðast á sama verði.
Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) mun ákvarða söluverð. 

Heildarstærð RVK 53 1 fyrir þetta útboð nemur alls 18.690 m.kr. að nafnvirði.

Heimild til lántöku á árinu 2015 er 2.190 m.kr. að markaðsvirði.

Uppgjör sölu fer fram mánudaginn 19. janúar 2015.

Samkvæmt aðalmiðlarasamningi Reykjavíkurborgar við Arion banka, Íslandsbanka,
Landsbanka, MP Banka og Straum fjárfestingarbanka, hafa aðalmiðlarar einir rétt
á tilboðsgerð. 

Óskað er eftir tilboðum í samræmi við útboðslýsingu í fylgiskjali:



Nánari upplýsingar gefur:
Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sími: 693-9321