2015-10-05 18:17:01 CEST

2015-10-05 18:18:02 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 40. viku 2015 keypti Reitir fasteignafélag hf. 257.874 eigin hluti fyrir
19.204.526 kr. eins og hér segir: 

Dagsetnin   Tími       Keyptir  Viðskipta-ve    Kaupverð      Eigin hlutir eftir
g                       hlutir            rð                           viðskipti
--------------------------------------------------------------------------------
28.9.2015  11:51         7.874          73,6     579.526               4.093.691
--------------------------------------------------------------------------------
2.10.2015  09:34       250.000          74,5  18.625.000               4.343.691
--------------------------------------------------------------------------------
Samtals                257.874                19.204.526                        
--------------------------------------------------------------------------------

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
félagsins sem var hrint í framkvæmd 19. júní 2015, sbr. tilkynningu til
Kauphallar þann 18. júní 2015. 

Reitir hafa nú keypt samtals 4.343.691 hluti í félaginu sem samsvarar 12,78% af
þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð
hinna keyptu hluta nemur samtals 304.299.346 krónum. Reitir eiga nú samtals
0,58% af heildarhlutafé félagsins. 

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 34.000.000 hlutir og
fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 2.300 milljónir króna. Framkvæmd
endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en
þann 29. febrúar 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður.
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og
viðauka við reglugerð nr. 630/2005.