2014-03-03 10:14:06 CET

2014-03-03 10:15:07 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Fyrirtækjafréttir

Reykjavíkurborg - RVK 19 1


Reykjavíkurborg hefur ákveðið í samræmi við útgáfuáætlun 2014 að efna til
útboðs í skuldabréfaflokki RVK 19 1 miðvikudaginn 5. mars. Reykjavíkurborg
stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 500 milljónir króna að markaðsvirði.
Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hækka eða lækka útboðsfjárhæð
útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. 

Útboðið verður með því fyrirkomulagi að samþykkt tilboð bjóðast á sama verði.
Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) mun ákvarða söluverð. 

Heildarstærð RVK 19 1 fyrir þetta útboð nemur alls 3.215 m.kr. að nafnvirði.

Heimild til lántöku á árinu 2014 er 2.180 m.kr. að markaðsvirði.

Uppgjör sölu fer fram mánudaginn 10. mars 2014.

Samkvæmt aðalmiðlarasamningi Reykjavíkurborgar við Arion banka, Íslandsbanka,
Landsbanka, MP Banka og Straum fjárfestingarbanka, hafa aðalmiðlarar einir rétt
á tilboðsgerð. 

Óskað er eftir tilboðum í samræmi við útboðslýsingu í fylgiskjali:



Nánari upplýsingar gefur:

Birgir Björn Sigurjónsson

Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar

Sími: 693-9321