|
|||
2009-06-30 18:23:21 CEST 2009-06-30 18:24:21 CEST REGULATED INFORMATION Landsvirkjun - Fyrirtækjafréttir- Leiðrétting: Standard & Poor's lækkar lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar - Frétt birt: 2009-06-30 17:51:48 CETLeiðrétting: Lánshæfi á innlendum skuldbindingum lækkar einnig í BB (stöðugar horfur). Matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur breytt aðferðafræði varðandi mat á lánshæfi fyrirtækja í eigu opinberra aðila (“Government Related Corporates”). Afleiðingin er sú að lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar vegna erlendra skuldbindinga lækkar úr BBB- (athugunarlisti) í BB (stöðugar horfur). Lánshæfi á innlendum skuldbindingum lækkar einnig í BB (stöðugar horfur). Hin breytta aðferðafræði hefur í för með sér alþjóðlega að Standard & Poor's lækkaði í dag lánshæfi á tveimur fyrirtækjum í opinberri eigu, hækkaði lánshæfi á fimm og setti tíu fyrirtæki á athugunarlista. Landsvirkjun fékk fyrst lánshæfiseinkunn árið 1998 og er þetta í fyrsta sinn sem fyrirtækið fær einkunn sem er lægri en sambærileg einkunn ríkissjóðs. Í lánssamningum Landsvirkjunar eru engin ákvæði sem kalla á uppsögn eða breytingar þó að lánshæfi lækki. Breytingin nú hefur því engin áhrif á vaxtakjör á eldri lánum fyrirtækisins. Breytingin hefur hins vegar, að öllu öðru óbreyttu, neikvæð áhrif á aðgengi Landsvirkjunar að nýju lánsfjármagni á ásættanlegum kjörum. Nánari upplýsingar gefur Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, í síma 515-9000 og 892-7912 |
|||
|