|
|||
2009-02-24 17:25:07 CET 2009-02-24 17:26:08 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð RIKB 13 0517 og RIKB 19 0226 viðbótarútgáfaSamkvæmt 5. grein í skilmálum um útboð ríkisbréfa, sem haldið var 20. febrúar sl. stóð aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér kaupréttinn í RIKB 13 0517 fyrir samanlagt 85 m.kr og í RIKB 19 0226 fyrir samanlagt 323 m.kr. og því nemur selt magn með uppgjöri 25. febrúar í flokknum RIKB 13 0517 alls 1.485 m.kr. og í RIKB 19 0226 alls 8.923 m.kr. að nafnvirði. |
|||
|