2013-12-09 16:31:00 CET

2013-12-09 16:31:01 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð ríkisvíxla RIKV 14 0317 OG RIKV 14 0616


Fimmtudaginn 12. desember kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á
ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 14 0317 og RIKV 14 0616 sem eru með gjalddaga 17.
mars og 16. júní 2014. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að
hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að
gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta.
Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagur 16. desember 2013.

Sótt verður um að RIKV 14 0317 og RIKV 14 0616 verði tekinn til viðskipta í
NASDAQ OMX á Íslandi þriðjudaginn 17. desember 2013. 

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569
9635.