2008-06-25 06:16:17 CEST

2008-06-25 06:17:18 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Össur hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Össur hf. - Stjórnendaskipti hjá Össuri í Ameríku



Mahesh Mansukhani hefur verið ráðinn til starfa sem  framkvæmdastjóri
Össurar í Ameríku. Mahesh tekur við  af Eyþóri Bender sem mun  starfa
áfram sem ráðgjafi hjá félaginu.

Mahesh kemur frá ráðgjafafyrirtækinu AlixPartners og er með MBA gráðu
frá Yale háskóla. Hann hefur yfir 12 ára reynslu í  stjórnendastarfi,
meðal annars stýrði hann dótturfélagi DuPont sem velti 1,1  milljarði
Bandaríkjadala.

,,Ég vil  þakka  Eyþóri  Bender  fyrir  hans  mikilvæga  framlag  til
velgengni félagsins."  sagði  Jón Sigurðsson  forstjóri  Össurar  hf.
,,Mahesh hefur  víðtæka stjórnendareynslu  og verður  sterk viðbót  í
stjórnendahóp Össurar."


Um Össur hf.:

Össur hf.  (OMX:  OSSR)  er   alþjóðlegt  fyrirtæki  á  sviði   stoð-
og  stuðningstækja  sem   hjálpar   fólki   að   lifa   lífinu    án
takmarkana. Fyrirtækið leggur áherslu á að  auka hreyfigetu fólks með
nýsköpun  í tækni  á sviði  spelkna- og  stuðningsvara, gervilima  og
vörum til   nota  við  blóðrásarmeðferðir.  Össur  hf.  leggur  mikla
áherslu á  fjárfestingu í  rannsókn  og   vöruþróun  sem   viðheldur
sterkri  stöðu  Össurar  á markaðnum.  Össur  leggur metnað  sinn  í
að veita  viðskiptavinum   og notendum góða   þjónustu til  þess   að
þeir  nái sem  bestum  árangur. Höfuðstöðvar félagsins eru  á Íslandi
og   helstu  starfsstöðvar  eru   í  Ameríku,  Evrópu  og  Asíu,  auk
dreifiaðila víðsvegar um heim. www.ossur.com