2018-01-02 09:30:00 CET

2018-01-02 09:30:02 CET


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Íslenska
Vátryggingafélag Íslands hf. - Breyting á réttindum tengdum einstökum flokkum verðbréfa

Reglubundin tilkynning um kaup VÍS á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 52 voru engin viðskipti með eigin bréf í tengslum við endurkaupaáætlun félagsins.

Endurkaupaáætluninni var hrint í framkvæmd 18. september 2017, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 15. september 2017.
VÍS hefur nú keypt samtals 16.623.538 hluti í félaginu sem samsvarar 30,22% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 190.533.767. VÍS á nú samtals 0,75% af heildarhlutafé félagsins sem er 2.223.497.541.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 55.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Heimildin gildir fram að aðalfundi félagsins 2018. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf verða í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.

Nánari upplýsingar veitir Andri Ólafsson samskiptastjóri í síma 660-5105