2009-10-13 15:48:13 CEST

2009-10-13 15:49:13 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsvaki - Fyrirtækjafréttir

Stjórn Landsvaka hf. áfrýjar dómum vegna Peningabréfa Landsbankans


Stjórn Landsvaka hf. áfrýjar dómum vegna Peningabréfa Landsbankans:

•  Stjórn Landsvaka hf. ákvað á fundi sínum í dag að áfrýja dómum héraðsdóms
   Reykjavíkur í málum er varða málefni fjárfestingarsjóðsins Peningabréf
   Landsbankans ISK til Hæstaréttar. 

•  Landsvaki hf. hefur farið yfir forsendur þeirra dóma sem félagið hefur
   ákveðið að áfrýja. Telur Landsvaki hf. að jafnvel þótt niðurstaða héraðsdóms
   verði staðfest fyrir Hæstarétti sé alls óvíst hvert raunverulegt tjón hvers
   hlutdeildarskírteinishafa er, ef nokkuð. Þetta byggir á því verðmæti sem
   fékkst við sölu eigna sjóðsins og þess svigrúms sem fjárfestingarsjóðir hafa
   til niðurfærslna án þess að lækka gengi. Er hér verið að vísa í leyfilegt
   frávik á gengi hlutdeildaskírteina.