|
|||
2012-06-07 15:39:52 CEST 2012-06-07 15:40:54 CEST REGULATED INFORMATION Reykjavíkurborg - FyrirtækjafréttirA hluti Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar - mars 2012Óendurskoðaður árshlutareikningur A hluta Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar - mars 2012 var lagður fram í borgarráði 7. júní 2012. Til A hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, þ.e. rekstur fagsviða, og Eignasjóð. Í fjárhagsáætlun fyrir tímabilið janúar - mars 2012 fyrir A hluta var gert ráð fyrir því að rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði yrði neikvæð um 861 mkr en samkvæmt fyrirliggjandi árshlutauppgjöri er niðurstaðan neikvæð um 405 mkr sem er 456 mkr betri niðurstaða en áætlað var. Rekstrarniðurstaða tímabilsins reyndist neikvæð um 1.081 mkr en í fjárhagsáæltun var gert ráð fyrir 1.117 mkr halla. Þannig var rekstrarniðurstaðan 36 mkr betri en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun. |
|||
|