2010-08-13 11:20:20 CEST

2010-08-13 11:21:20 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsnet hf. - Ársreikningur

Árshlutareikningur Landsnets hf. fyrir tímabilið janúar - júní 2010


- Hagnaður tímabilsins nam 1.034 milljónum króna -

Hagnaður Landsnets hf. eftir skatta samkvæmt rekstrarreikningi nam 1.034 m.kr.
fyrir fyrstu sex mánuði ársins samanborið við hagnað að fjárhæð 167 m.kr. fyrir
sama tímabil fyrra árs. Betri afkoma stafar aðallega af minna gengistapi en
árið áður. 

Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) nam 4.645 m.kr.
samanborið 4.647 m.kr. á sama tímabili fyrra árs.

Eiginfjárhlutfall í lok tímabilsins var 12,9% samanborið við 11,3% í lok
síðasta árs. Eigið fé í lok tímabilsins nam 9.356 m.kr. samanborið við 8.322 í
lok síðasta árs. Heildareignir félagsins námu 72.313 m.kr. samanborið við
73.676 m.kr. í lok síðasta árs. Heildarskuldir námu 62.957 m.kr. samanborið við
65.354 m.kr. í lok síðasta árs. 

Lausafjárstaða félagsins er sterk og í lok tímabilsins nam handbært fé 4.873
m.kr. Handbært fé frá rekstri nam 3.048 m.kr. á tímabilinu samanborið við 2.909
m.kr. á sama tímabili í fyrra. 

Rekstur félagsins er samkvæmt áætlun. Handbært fé frá rekstri stendur undir
fjárfestingum tímabilsins og hefur einnig verið nýtt til lækkunar lána.

Árshlutareikningur Landsnets hf. var samþykktur á fundi stjórnar 12. ágúst 2010.



Frekari upplýsingar veitir:

Guðlaug Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri fjármála, sími 563 9311 eða netfang
gudlaugs@landsnet.is


Sjá viðhengi.