|
|||
2013-04-29 18:47:04 CEST 2013-04-29 18:48:05 CEST Reginn hf. - Lýsing/tilkynning um birtingu lýsingarLýsing - Skuldabréfaflokkur REG1 12 1Það tilkynnist hér með að í dag verður birt á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins, www.fme.is, lýsing REG 1 fagfjárfestasjóðs sem er lánveitandi Kvikmynda- og Knatthallarinnar ehf. Kvikmynda- og Knatthöllin ehf. eru eigendur að fasteigninni Fossaleyni 1, betur þekkt sem Egilshöll og eru bæði félögin dótturfélög Regins hf. Í lýsingunni má meðal annars finna verðmat á Fossaleyni 1 (Egilshöll) sem framkvæmt var af PricewaterhouseCoopers ehf., fyrir REG 1 fagfjárfestasjóð. Samkvæmt virðismati var virði fasteignarinnar metið á bilinu 6.364 - 6.880 milljónir kr., byggt á sjóðstreymismati núverandi leigusamninga. Í viðauka við lýsinguna má finna virðismatið í heild sinni. REG 1 fagfjárfestasjóður er í umsýslu Stefnis hf. Nánari upplýsingar veitir: Helgi S. Gunnarsson Forstjóri Regins hf. S: 5128900 / 8996262 |
|||
|